Gesthús eru þyrping 11 hlýlegra parhúsa, parhúsabyggð, á fallegu útivistarsvæði við Engjaveg á Selfossi.
Í hverju húsi eru 2 sjálfstæð gistirými. Alls eru því 22 herbergi sem hvert um sig getur hýst 2 - 4 gesti. Í hverju herbergi er lítil eldunaraðstaða, ísskápur, sjónvarp og baðherbergi með sturtu.
Í þjónustumiðstöð er framreiddur morgunverður og kvöldverður fyrir hópa auk léttvíns og áfengs öls. Við miðstöðina eru tveir heitir pottar til afnota fyrir hótelgesti.
Frá Selfossi er stutt til allra helstu ferðamannastaða Íslands.

-->
|